Bara einn kúnni eftir og svo er ég komin í helgarfrí:oD Og er búin að ná að plana helgina, eða svo kind of. Er búin að vinna á eftir kl.20, fer heim og reyni að fiffa fésið e-ð, og já, jafnvel skipta um föt! Efast um að Nike þemað rokki í þrítugsafmæli. Svo er ég að spá í að taka daginn á morgun snemma til að æfa, er að melta það hvort ég eigi að fara í spinning, en nýja hjólið verður allavegna vígt um helgina! Kannski ekki mjög mikið hugmyndaflug að fara í spinning líka, kannski maður skelli sér bara á færibandið, og hjóla svo til litlu tvíbbalinganna. Fæ að passa þá ALEIN, þeir eru sko bara 4 mánaða! Mamma þeirra ætlar reyndar bara út í búð, en ég verð alltaf ótrúlega ánægð þegar e-r treystir mér fyrir barninu/börnunum sínum, ekki hægt að fá meiri traustsyfirlýsingu! Finnst mér allavegna...
Eftir það fer ég og hitti Valsstelpurnar og við verðum í einhverju sprelli yfir daginn, ákvað að brúa bil beggja þ.e að vera með Valsstelpunum yfir daginn og e-ð fram á kvöldið, en sleppa hófinu sjálfu og detta í staðinn í pastaát með svebba. Hann reyndar sér um pastaátið, ekki er ég að fara að spila fótboltaleik daginn eftir! Eeeeen kannski ég kíki bara á nammibarinn, 50% afsláttur, maður er svo séður, alltaf að græða!! ;oþ
Fannsi var að tala um að fara í hjólatúr, kannski ég taki hann á orðinu á meðan svebbi tekur innhverfa íhugun fyrir leikinn (note to self, athuga hvort svebbi stundi innhverfa íhugun, eða sé jafnvel partur af sértrúarsöfnuði, betra að hafa þessa hluti á hreinu áður en lengra er haldið!) Var ég búin að minnast á nýja hjólið mitt?? Það er sko geðveikt flott! Allir að dást að því! Ok reyndar eru samtölin yfirleitt á þessa leið:
Ég: "hey viltu sjá nýja hjólið mitt?"
hinn:"öh nei ekkert frekar"
ég:(áður en hinn lýkur við setninguna sína)"koddu það er uppi, það er sko geðveikt flott"
hinn:"ok þá"
*labbi labbi labb* (upp tröppur)
ég:"túddúru hérna er það, finnst þér það ekki geðveikt flott"
hinn:"uh jú jú rosa flott"
ég:"VISSI AÐ ÞÉR MYNDI FINNAST ÞAÐ!"
Svo er það bara túlkunaratriði úr hvorri átt aðdáunin kom..! ;oþ
Jæja, ætla að gera mig ready fyrir síðustu kroppatamningu dagsins...
Engin ummæli:
Skrifa ummæli