mánudagur, maí 15, 2006

helgin o.fl

Helgin var algjör snilld! Á laugardaginn byrjaði ég á tvíburapössun, sem gekk þvílíkt vel, mamman alveg steinhissa á að það var ekkert væl þegar hún kom heim, en þeir voru alveg eins og englar! Enda klingdi EKKERT í eggjastokkunum hjá mér! *hóst* hehe, einmitt! Eru algjör æði!!

Fór svo og hitt Vallstelpurnar, fengum allar svona "miss-eitthvað"-borða og fórum í ratleik. Ég var "miss fitness" og svo aftan á borðanum stóðu svona persónulega máltæki og hjá mér stóð: "æ ég kemst ekki, þarf að fara að sofa" hehe jájá tek á mig sökina, hef akveg notað þetta einu sinni eða tvisvar!! :-/ En þetta var rosa gaman, og hefðu ekki getað verið heppnari með veður. Enduðum svo í baðstofunni í Laugum. Það er svona ÍSKALDUR pottur þar, og ég var að mana eina til að fara (það hvarflaði ekki einu sinni að mér að prófa, kuldaskræfa frá helvíti!) og ég lofaði henni 2000 kalli, og hún lét sig hafa það!! Og þegar hún byrjaði að mana mig þá get ég nottla ekki verið minni maður og lét mig hafa það (og vann 2000 kallinn tilbaka;oþ) en tilfinningin sem kom eftir á var svo góð að við fórum báðar aftur, mjög eðlilegar...

Stelpurnar gerðu sig svo ready á hófið en ég fór niðrí Sporthús, sótti hjólið mitt og nýja hjálminn og hjólaði í vesturbæinn þar sem tekið var konunglega á móti mér með kjúklingapasta;o) Eyddi kvöldinu í að rústa Eysteini í scrabble og spyrja hann "Spark-spurninga", það er sennilega ekki hægt að eyða kvöldi á nördalegri máta!! Og ekki hefði ég trúað því að ég myndi kynnast einhverjum sem dregur mig út kl.8:45 á sunnudagsmorgni til að fara í göngutúr og skjóta á körfu! Sem var samt gaman sko, fyrir utan að ég tapaði, en þar sem ég hef ENGANN metnað til að vera góð í körfu þá gæti mér ekki verið meira sama!

Rúsínan í pylsuendanum var svo Grindavíkurleikurinn í gærkvöldi þegar þeir unnu ÍA. Tók alla gríslingana með mér, og missti m.a af marki nr.2 hjá ÍA því að Andri var að láta mig finna hvað hann er orðinn sterkur, en það er önnur saga! Þetta var brilliant sigur hjá Grindavík og ég valdi mér að sjálfsögðu mann leiksins, kannski örlítið hlutdræg en mér fannst hann samt bestur! ;oþ Var svo að lesa umfjöllun hjá Fréttablaðinu og þeir voru ekki með NEITT rétt! Það var svebbi sem átti síðustu sendinguna og átti meirihlutann í þessu marki, ekki einhver Ray spray! Umfjöllun moggans var töluvert fagmannlegri, leit allavegna út fyrir að blaðamaðurinn þeirra hefði actually séð leikinn! Og Eysteinn fékk eitt M, ég hefði að vísu gefið honum allavegna 3, en þá komum við aftur að þessu með hlutdrægnina!! ;oþ

En já, allavegna enn ein frábær helgi að baki, dagurinn í dag byrjaði að vísu ekki vel, svaf yfir mig!! sem gerist ca. aldrei! En ég vaknaði kl.6, og þar sem ég var í vesturbænum þá hefði ég aldrei náð að koma mér þangað nema mæta 30-40 mín. of seint þannig að ég hringdi í kúnnann minn og hann reddaði sér bara sjálfur, ætti að kunna þetta, enda búinn að vera hjá mér í rúmt ár! Þannig að þetta slapp fyrir horn, sökkar samt feitt að sofa yfir sig, helv... kæruleysi:-/

Jæja, farin aftur að þjálfa, bæbbli

2 ummæli:

Begga sagði...

Hæ krúsí Takk fyrir frábæra ferð á laugardaginn...held þetta hafi samt alveg farið með mig að hanga svona mikið annars staðar en uppí rúmi því ég var alveg búin á sunnudeginum eftir æfingarnar 2...ég sleppti líka æfingu um kvöldið á mánudag...ég öfunda þig svo af hjólinu þínu :)...eitt í viðbót til hamingju með Eystein og félaga, gekk ekki eins vel hjá Val á mánudaginn en svona er boltinn skin og skúrir...jæja bæjó skvís Begga

bjarneybje sagði...

Takk takk, og innilega til hamingju með hjúkkuprófin, miss nurse;o) vissi alltaf að þú myndir massa þetta!! ;oþ