Ég er snillingur í að rugla saman orðum í setningum:-/ "settu pokann í brauðið" hefur t.d komið upp og ca. milljón önnur mismæli, eins og þegar ég byrjaði að heyra ofsjónir! Hef samt sjaldan hlegið jafn mikið og þegar ég var að tala um Snorra og Hafrúnu og sagði "Snorrún og Hafri" jesús minn, ég DÓ þegar ég áttaði mig á því hvað ég hafði sagt! Jæja hugsa meira, tala minna:-/ Eða kannski ekki hugsa meira, það myndi enda með ósköpum en allavegna að bíða þá aðeins með að tala...
Umfjöllun um herþjálfunina okkar í Sirkus, held reyndar að ég hafi verið klippt útaf myndinni! Fæ samt fallega umfjöllun, Egill sagði að við værum gott þjálfarateymi, hann sexy (matsatriði Egill minn! ;oþ) og harður þjálfari, Elmar kexruglaður og ég væri góða stelpan sem hugsaði um að það væri allt í lagi með alla. Held allavegna að það sé hrós!
Svo er líka allt í lagi að hleypa þeim í sviðsljósið, Gillz búinn að vera í fjölmiðlabanni og sonna, Elmar þarf líka að fá sinn skerf. Ég er allavegna góð í bili, 15 mín. frægðin mín er komin aftur, byrjað að sýna Zo On auglýsinguna í sjónvarpinu auk þess sem andlitið á mér var aftur sent í A-4 inná 14.000 heimili (jújú, horið ennþá á sýnum stað! :-/) Eysteinn vildi meina að ég hlyti að vera voða sæt þar sem þetta er fata auglýsing en samt er bara mynd af andlitinu á mér! hehe ætla nú bara að leyfa öðrum að dæma um fríðleikann, held að þeir hafi nú samt bara valið mig þar sem ég er venjuleg as can be, sem er alveg lógískt í ljósi þess að meirihluti fólks í heiminum er venjulegt fólk...
Fór á Grindavík-Keflavík á miðvikudagskvöldið, Eysteini tókst að næla sér í feitt olnbogaskot í gagnaugað, og ég get svarið það að drengurinn var með vatnshöfuð eftir leikinn! Meiriháttar fyrir hann svo að hitta tengdafjölskylduna sína í fyrsta skipti daginn eftir, með risaglóðurauga og auka höfuð! Fórum sem sagt í útskriftaveisluna hjá Óskari Degi, ekkert smá krúttlegt! Myndirnar af honum frá útskriftinni voru æði! Hann var í svona ljósbrúnum flauelsjakka, sem var aðeins of stór, með pínu lubba en vatnsgreitt til hliðar, hann var eins og risalítill kall!
Svo er hann á einhverju "breik"skeiði núna, þannig að ég ákvað að kenna honum nokkur trix! Tók mig til, með minn tígullega limaburð og skellti mér í orminn góða. Soldið langt síðan ég tók hann síðast en ég lét það liggja milli hluta og sveif af stað, hendurnar lentu eins og þær áttu að gera EN svo kom neðri búkurinn í kjölfarið og hlunkaðist niður á parketið í heilu lagi:-/ Og með aðstoð þyngdaraflsins þá hefur þyngdin verið á við meðalstórann fíl! Til gamans má geta þess að mér er ennþá illt í lífbeininu...
Fór á "Fullkomið brúðkaup" í gær, skil vel af hverju það hefur gengið lengi fyrir fullu húsi. Auðvitað alltaf erfitt að fara á eitthvað með miklar væntingar, en þetta stykki stóðst allavegna mínar, sérstaklega var herbergisþernan snilld! Átti allavegna vel uppá pallborðið hjá skopskyninu mínu;oþ
Og svo eru búnar að vera æsispennandi skvassviðureignir, ég og Gréta Rún, sem erum báðar þekktar fyrir að vera með jafnaðargeð í glerbúrinu (!) ákváðum að elda grátt silfur saman, humm eða reyndar ákváðum við nú bara að spila skvass, en þetta með silfrið er nokkuð góð hugmynd, getum kannski þá föndrað það saman fyrir jólin eða eitthvað. Back to the subject! kl.6-kúnninn minn var í fríi í gærmorgun þannig að þá var nú ekki ráð að sofa aðeins lengur, já nei við stöllur fórum í skvass! Hún vann mig í gær 3-2 eftir mikla dramatík undir lokin í úrslitarimmunni en ég náði að hefna ófaranna með 3-2 sigri í morgun:oD Hehe Edda vinakona frétti af okkur í skvassinu, einhver sem vinnur með henni að segja henni frá því að hann hefði verið vitni að tveimur öskrandi stelpum í skvassi! Og hún kveikti nottla á perunni;oþ Samt vorum við ekki einu sinni svo slæmar..! Vó hvernig erum við þá á slæmum degi?? :-/ Oh well, þetta er keppnis;o)
Gotta go, gera mig sæta fyrir brúðkaupið hjá Evu og Björgvini, later...
3 ummæli:
Hahahah, snilldarfærsla! Breikið var best, efast ekki um hæfileikana til að gera orminn;) Þú sýnir mér sporin þegar þú kemur í heimssókn hingað,þ.e. ef lífbeinið verður búið að jafna sig;)
hei! ég var líka á leikritinu í gær.... stalst aðeins úr próflestrinum :/ - algjör snillingur þessi herbergisþerna... hvernig er eiginlega hægt að vera uppi á háa C-inu í svona langan tíma?!?
Sælar skvís.. já ég bíð spennt eftir að taka úrslitaleikinn!!! og glætan að þú fáir að vinna...
kv. Gréta Rún
Skrifa ummæli