Jei er að fara að kaupa langþráða hjólið mitt!! :oD Sigurþór ætlar að vera svo elskulegur að koma með mér í Örninn og meta stöðuna. Svo hjóla ég þaðan niðrí Sporthús að vinna smá og svo heim. Dísús, ætla líka að kaupa hjálm, þarf að yfirvinna fóbíuna mína, finnst ég alltaf svo asnalega með hjálm:-/ En mér finnst samt asnalegra að meiðast alvarlega, jafnvel lamast af því að mér fannst svo hallærislegt að vera með hjálm! Finnst hausinn á mér einfaldlega of mikils virði..! ;oþ
Svo er aftur útihlaup á morgun 5:15, og aftur tröppurnar góðu! Ætla að hita upp með að hjóla þangað að heiman, úr Breiðholtinu. En það eru allir velkomnir með sem vilja, sýna úr hverju þið eruð gerð! Sýna smá power of will;o) Þarf sko að fara snemma að sofa í kvöld, vaknaði kl.4:30 í gærmorgun, náði ekkert að leggja mig yfir daginn og var svo andvaka til kl.1 í nótt, búið að vera píííííííínu slen yfir manni í dag:-/ Er að vinna til kl.20 og ætla svo beint heim í bælið, eftir að hafa nottla hjólað heim, djö... hvað er ég eiginlega búin að koma mér útí?? Oh well, þetta er alltaf þess virði þegar maður er kominn á áfangastað.
Jæja, ætla að skella mér í hjólaoutfittið áður en Sissi kemur, þarf að vera klár í slaginn, þrátt fyrir nánast óyfirstíganlega þreytu:-/ en koma svo, willpower..! ;oþ
2 ummæli:
Hvaða ofur-ofvirkni er í gangi?!? meira að segja mér finnst þetta pínu mikið... En svo gæti vel verið að þú værir búin að plata mig út í sömu vitleysuna ef ég væri heima á klakanum ;) en koma svo armstrooooong, you will make it :)
Blessuð Bjarney, búin að fylgjast með þér í svoldinn tíma á alnetinu eftir að rakst á bloggið þitt. Þú ert ekki í lagi!! Þegar þú ferð á fætur, þá er ég að fara að sofa hehe... shit.
Haltu áfram að vera svona dugleg :)
Kv. Védís fyrrum vinnufélagi
Skrifa ummæli