þriðjudagur, maí 09, 2006

og matreiðslumaður ársins er....

Ef það er einhver ástæða fyrir því að ég mun aldrei giftast, ok reyndar eru margar ástæður fyrir því að líklega mun ég aldrei giftast, en sú stærsta er sennilega sú að ég er afleitur kokkur! Allavegna fyrir aðra, núna er ég að elda hafragraut og er með hnút í maganum yfir að hann verði vondur:-/ ég er nebbla svo hrikalega nægjusöm sjálf að ég hendi mínum bara í örbylgjuofn í mínútu, kæli með soyjamjólk, bragðbæti aðeins með einhverjum fræjum, smá hunangi og kanil og túdúrú maturinn minn ready!
Úps smá fast í botninn, (en ekki brunnið! sem er mjööööög jákvætt!) pabbi var einu sinni rosa stoltur af mér að kunna að búa til grjónagraut en það er sko langt síðan ég lærði það! Hef frá því ég var 16 ára eða e-ð eldað oní sjálfa mig, en eins og ég segi ég er svo ótrúlega ó-vandlát á mat, ef hann er hollur og góður fyrir líkama og sál þá get ég slafrað nánast hverju sem er oní mig, og borða svo nammi þess á milli, þarf sko ekki að pína því oní mig!! ;oþ

Vá hvað var hressandi að fara út að hlaupa í morgun! Var skynsöm og stillti klukkuna á 4:30, er alltaf heavy lengi að drullast útúr húsi, snúsaði reyndar til 4:32 en var mætti niðrí Sporthús 5:10 og við lögðum af stað 5:15 eins og planað var:oD Það eru einhverjar tröppur dauðans þarna rétt hjá Sporthúsinu, ég hef aldrei farið í þær en heyrt margar hryllingssögur! (ok soldil dramtísering!) en já, best að fara í þær í fyrsta skipti kl.5:20 á fastandi maga! Þetta var brutal! Tók mig um 3 mín. að fara alla leið með því að stíga í hverja einustu tröppu, en OMG ég hef aldrei súrnað jafn mikið í fótunum á ævinni held ég! Á miðri leið fannst mér fæturnir á mér vera orðnir 50 kg hvor:-/ En á sama andartaki byrjaði Rocky lag að hljóma úr iPodnum og gaf mér smá auka kraft, ég þrjóskaðist áfram og hugsaði: (hugsist með Homer Simpson rödd) VERÐ-AÐ-KOMAST-UPP... Og ég komst upp, með púls í 202, mjög eðlilegt! Sem betur fer kom dágóður kafli niður á móti eftir það þannig að ég náði púlsinum niður, svo þegar svona tæpur kílómeter var eftir þá sagði ég við Fannar að stinga mig bara af ef hann vildi hlaupa hraðar (samt fannst mér ég alveg hlaupa hratt sko!) og hann sprettaði úr spori á meðan ég hljóp eins og vindurinn á eftir honum;oþ Hnéið aðeins farið að stríða mér undir lokin sem þýðir að sennilega mun ég ekki geta hlaupið mikið næstu 1-2 daga, en þetta var sko totally þess virði, ætla aftur um leið og hnéið gefur grænt ljós..!

Farin að huga að matnum, later...

4 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Þú veist að þú getur allaf leitað á brjáðarþjónustu geðdeildar. Farin að efast um geðheilbrigði þitt ;) Held meira að segja að þú yrðir lögð strax inn, það er meira en fólkið í kompás þættinum getur sagt!

bjarneybje sagði...

Hahaha já, ég ætti kannski að hafa samband við Kompás gengið og fá þá til að fylgjast með SORGARSÖGUNNI minni! "mun Bjarney komast inn á geðdeild í dag eða mun hún þurfa að bíða í 2 klukkutíma og þar með er lífi hennar og limum stefnt í bráða lífsshættu?!" Sándar allavegna mjög spennandi!! ;oþ

Nafnlaus sagði...

OK, núna verður maður samt að prófa að hlaupa þessar tröppur!

bjarneybje sagði...

Klárlega! Ætla aftur klukkan 5:15 á fimmtudag, koddu með ef þú verður orðin frísk! ;oþ