Loksins kom mannsæmandi veður hérna á þessum klaka! Vá hvað þetta er búið að vera sweet dagur!
Ætla samt að byrja á gærdeginum, fór að horfa á Sindra keppa í fótbolta með 7.flokki í Grindavík, reyndar alveg týpískt að ég var e-ð ógó þreytt, vaknaði reyndar snemma en fór að sofa aftur og svaf til kl.12:30! Fór svo að horfa á fótboltann og var í summer dressinu, en nei þá byrjaði að rigna og var bara frekar kalt! Ég svaf s.s af mér sólina:-/ En þetta var ekkert smá krúttlegt,e ina skiptið sem þetta jaðraði við að vera liðsuppstilling var í byrjun leiks þegar öllum var plantað í sínar stöður en eftir það þá voru þeir bara eins og mauraþúfa á eftir boltanum! Sindri var líka búinn að keppa í sundi um morguninn, algjör garpur! Stóri grindjáninn minn kom á síðasta leikinn til að sjá litlu grindjánana og svo fórum við að kaupa ís, þ.e ég, Eysteinn og Óskar Dagur.
Óskari finnst ótrúlega fyndið að kalla Eystein, HurðarHÚNI, þannig að Eysteinn fann uppá því að kalla Óskar Dag, Páskadag. Mikill húmor í gangi! Svo ákvaðu Eysteinn og Óskar að reyna að finna e-ð fyndið á mig, en gekk ekki rosa vel þrátt fyrir að ég kæmi með ýmsar tillögur, t.d Viðey, Flatey (eins og ég var kölluð áður en brjóstin létu sjá sig!) o.s.frv. Svo fórum við bara að tala um eitthvað annað en eftir svona 15 sek. þá heyrist í litla dýrinu: "hey ég er kominn með! Bjarney ASNI!" Dísús við sprungum úr hlátri (eftir að ég var búin að móðgast smá!) En já hann er fyndinn litla gerpið, kippir í kynið;oþ
Svo tilkynnti Óskar Dagur mér að hann vildi byrja að æfa handbolta (og litla hjartað mitt tók kipp af gleði:oD) þannig að ég gaf honum bolta og byrjaði að láta hann æfa sig, t.d að dripla bæði með hægri og vinstri og sonna þetta helsta, ætla að byrja snemma að undirbúa litla atvinnumanninn minn;o)
Svo rann dagurinn í dag upp, hangsaði uppí rúmi til hádegis, mjög ljúft en samt pínu samviskubitsvaldandi þar sem sólin skein skært fyrir utan! Ég og Hafrún ákváðum að skella okkur á Esjuna en svo sótti ég hana og við ákváðum að labba í kringum Vífilsstaðavatn þar sem hana langaði á Haukar-Valur kl.16 og það var orðið soldið tæpt að fara á Esjuna. Göngutúrinn var næs en endaði á því að fara í sjoppu, kaupa bragðaref og sitja fyrir utan sjoppuna að sleikja sólina! En bætti það upp með að skella mér á línuskautana áðan, það var æði. Var í tæpann hálftíma, fór úr Nauthólsvíkinni að Kaplaskjólsvegi og tilbaka, elska línuskautana mína:oD Ein með iPodinn minn í geggjuðu veðri, lífið verður ekki mikið betra...
Vó munnræpa, farin í sturtu og svo að lúlla, later...
Engin ummæli:
Skrifa ummæli