mánudagur, maí 22, 2006

Aaargh


Do you know why it's called PMS? because Mad Cow was already taken"

Já það er ekki tekið út með sældinni að vera kvenmaður! (fyrir þá sem vita það ekki þá er PMS enska, læknisfræðilega orðið yfir fyrirtíðaspennu!) Þetta er alveg 2 vikna prósess að bólgna út, fá feituna og ljótuna (fann meirsegja bólu á enninu í dag:-/) og ca. daginn áður "geysir gýs" er maður farinn að sýna hættulega tilburði til ofbeldis fyrir það eitt að fá NAMMI!!! Pant vera karlmaður í næsta lífi! Æ eða kannski ekki, sé til....

Helgin var snilld, vægast sagt. En ég veit ekki hvort það sé í frásögur færandi, en það er svo sem ekki von á góðu þegar eitt nörd hittir annað nörd! Byrjuðum í Laugum á laugardag, og svebbi var rosa duglegur að fara í ÍSkalda pottinn og var soldið lengi meirsegja! En ég bætti það upp með að fara tvisvar:oD Svo var aðeins kíkt í nammibúðina og svo tórað framyfir Eurovision. Byrjuðum svo sunnudaginn á að vera farin út að hlaupa fyrir hádegi (ég var búin að minnast á þetta með það þegar 2 nörd hittast!) og svo smá letilíf fyrir framan tellíið þar til helgin var toppuð með einu Scrabble, þar sem enn er ágreiningur um úrslitin!! (En ég veit í hjarta mínu að VAXÞROTINN er EKKI orð!! ;oþ)

Nenniggi meir, ætla að fara að lúlla, skilst að við ætlum ekki út að hlaupa fyrr en eftir hádegi á morgun, það er ágætt, er ekki í miklu stuði til að hlaupa í frosti kl.5:15 að morgni til (já ég veit það kallast aumingjaskapur:-/ ætla samt á fimmtudag, er það ekki Fannsi??) En þá get ég í staðinn bara lyft í fyrramálið, þarf víst að koma mér í form fyrir allt þetta fjallabrölt sem er framundan!

Hafið það gott þar til næst börnin góð...

5 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Fimmtudagur it is :)

Nafnlaus sagði...

hvað þarf maður að gera til að fá að fara með ykkur að hlaupa á fim... ??? ;)

bjarneybje sagði...

Bara mæta! ;o) En þar sem það er uppstigningadagur og opnar ekki fyrr en kl.9 í sportó þá vorum við að spá í að fara kl.8, kemstu þá?

Nafnlaus sagði...

já bara betra!! mæti kl 8 :)

bjarneybje sagði...

brilliant:oD