miðvikudagur, maí 31, 2006

Hvannadalshnjúkur here I come...


Var að koma af fundi hjá Ferðafélagi Íslands, og nei ferðinni er ekki aflýst þrátt fyrir þetta smávægilega snjóflóð í gær;oþ Þannig að skömmu eftir hádegi á laugardag þá munum ég, Eva og Sandra (ásamt rúmlega 100 öðrum!) tróna þarna á toppnum:oD Veðurspáin er líka mjög góð þannig að ég efast ekki um þetta verði BRILLIANT! Þarf aðeins að skjótast á morgun og spandera nokkrum þúsund köllum! Vantar soldið í fjallgöngu-kittið mitt, t.d bakpoka, legghlífar, almennileg sólgleraugu og þetta helsta! En ég leigi t.d ísöxi, belti (ef maður skyldi detta oní sprungu og það er víst alltaf einhverjir sem detta í sprungu, en yfirleitt ekki djúpar, *hjúkk*!) Ég fékk alveg fiðring í mallann og alles, er þvílíkt spennt!
Hef annars ekkert meira í fréttum, er heltekin af upprennandi fjallgöngum, og er farin að huga að því hvert skal haldið eftir fimmvörðuhálsinn, stefnan var reyndar líka sett á river rafting þetta sumarið þannig að það er nóg framundan..! ;oþ

Muna að kjósa, I´m out....

3 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Jiii en spennandi! Vá geggjað:) ég fékk líka alveg fiðrildi í magann þegar ég las þetta með sprungurnar! Talandi um adrenalín-orku-kikk! Hlakka til að heyra hvernig þetta var :) (gæfi mikið til að fara með!!!! )

Nafnlaus sagði...

úff eins gott að ég skráði mig ekki. Ég myndi deyja held ég úr lofthræðslu

bjarneybje sagði...

Nei nei, maður er fastur í línu, ekkert að óttast! ;oþ