fimmtudagur, maí 18, 2006

esjugangan mikla...

Æææ, kjánahrollur! Djöfull floppaði Silvía Nótt! Var mjöööög illa sungið, ekki það að ég hafi mikið tóneyra en mér fannst hún varla halda lagi! Sennilega ekki verið auðvelt að koma fram fyrir þúsund púandi áhorfendur, en hún gerði sér það svo sem alveg sjálf, hefði samt viljað sjá hana þá syngja þetta almennilega. En jæja, vonandi voru peningum skattborgara vel varið í þessa uppákomu;oþ We are the winners, eruði að grínast?? Sennilega vondasta lag sem hefur verið samið, úff fékk reyndar líka kjánahroll við það, og viðrinin frá Finnlandi. Oh well, Eurovision stóð allavegna undir nafni sem vondu-laga-keppni...

Ég og Fannar fórum uppá Esjuna í morgun, skildum ekkert í því hvað þetta var erfitt og efuðumst um ágæti líkamsforms okkar og skildum enn minna í því hversu mikið af fólki í lélegu formi hefur drullast þarna upp, eða jafnvel með krakka o.s.frv! Við vorum klukkutíma og 40 mín. upp og vel þreytt eftir að vera búin að klifra og labba í snjó og eitthvað. Fórum og skrifuðum í gestabókina, sáum þá stiku, löbbuðum að henni og þá var STÍGUR ÞAR NIÐUR/UPP! Við fórum sem sagt einhverja bandvitlausa leið:-/ Og sko 50 sinnum erfiðari! En það var alveg þess virði eftir á, bara smá ævintýri;oþ Ætla samt réttu leiðina næst..!

Jæja nenniggi meir, later...

8 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Ekki myndi ég vilja flytja lag veik fyrir framan svona mikið af fólki :/ En þessi keppni eyðilagðist þegar þeir breyttu í símakosningu.. Við eigum ekkert í Austurlöndin...

bjarneybje sagði...

held við höfum bara klúðrað þessu sjálf núna...

Nafnlaus sagði...

Þetta þýðir líka að næst þegar þú segist rata e-ð þá fylgi ég þér ekki :)

bjarneybje sagði...

ég sagði aldrei að ég rataði! Sagði að ég hefði farið áður en ekki að ég hefði endilega farið réttu leiðina!!! ;oþ

Nafnlaus sagði...

Er alveg hjartanlega ósammála þér varðandi Silvíu, hún var mjög glæsileg á sviðinu og reyndar fyrir utan nokkra falska tóna þá var þetta bara í mjög góðu lagi. Fólkið skildi þetta bara ekki frekar en við íslendingarnir fyrsta árið sem hún var í loftinu. Snilldin ein, treysti á að þú farir út á flugvöll og takir á móti henni fyrir okkur hin

bjarneybje sagði...

hún söng þetta illa, það er ekki einu sinni hægt að þræta um það! Hún söng þetta mikið betur hér heima, og hún gekk líka fram af fullt af íslendingum sem eiga þó að vera farnir að "skilja" hana. Mér fannst þetta flopp og vona að þessi brandari fari að taka enda, en að sjálfsögðu hefur fólk fullann rétt á að vera ósammála mér;o)

Getur samt gleymt því að ég fari út á flugvöll..!

Nafnlaus sagði...

Ja það eru nú margir sem hafa dottið´illa í esjunni ..... meir að segja komið félag fólks sem hefur dottið .... það er eins og hún hendi sumum bara burt ... en Esjan er falleg ... þið hafið ekki farið alveg upp .. er ekki snjór ennþá efst .. var skrifað í bókina ? kærkv.Nanna

bjarneybje sagði...

júbb fórum alla leið, nánast enginn snjór og kvittuðum að sjálfsögðu í bókina góðu! ;oþ