laugardagur, maí 06, 2006

valkvíði, sigurvíma o.fl

Oh ég er með svoooo mikinn valkvíða:-/ Er að fara að kaupa mér hjól en ég get ekki ákveðið hvar eða hvernig! Á ég að fara í ekta hjólabúð og kaupa á 20-30.000 eða fara í Hagkaup og kaupa á 10-15.000. Ég gerði nebbla einu sinni það að kaupa lélega línuskauta en það varð til þess að ég nennti aldrei á þá, en keypti mér svo góða, sem að sjálfsögðu kostuðu sitt, en núna veit ég fátt skemmtilegra en að skella mér á skautana (þó ég geri það að vísu alltof sjaldan:-/) er svo hrædd um að gera sömu mistök með hjólið, en hins vegar þurfa gæðin sennilega ekki að vera jafn mikil ef eini tilgangurinn er sá að fara milli staða innanbæjar (þó það jaðri reyndar við vera hættulegt, þetta blessaða gatnakerfi er ekki beint hliðhollt hjólreiðafólki! T.d mjög eðlilegt þegar hjólreiðafólk er hjólandi á miðri Kringlumýrarbraut á háannatíma, pant ekki!!)
æi ég ætla nú samt ekki að eyða morðfjár í þetta þar sem ég veit ekki hversu mikið það verður notað, skil samt ekki, sumarið þegar ég var að keppa í fitnessinu þá var ég alltaf á hjólinu og fannst það ekkert tiltökumál, hjólaði úr Breiðholtinu á æfingu í Planet sport (í Skeifunni), þaðan í vinnuna í Gym80 (Suðurlandsbraut), og þaðan aftur heim og stundum með viðkomu í Planet Sport til að æfa aftur! Ég held ég sé orðinn letipúki svona í seinni tíð:-/

Mamma tilkynnti mér það að pabbi skildi hvorki upp né niður í g-strengsnaríunum mínum. AF HVERJU HÉLT HÚN AÐ MIG LANGAÐI AÐ VITA ÞAÐ??? Pabbar spá ekki í g-strengsnaríum og foreldrar manns stunda ekki kynlíf, punktur!! Djöss tillitsleysi að vera að upplýsa mann um þessar pælingar...

Er að fara að horfa á Sindra litla frænda minn keppa í fótbolta á eftir, hann er í 7.flokki í Grindavík. Það verður örugglega sætast í heimi! Fór einu sinni að horfa á hann keppa í körfubolta, einn leikurinn fór 1-1! Hversu krúttlegt er það??

Ég lofaði litlu dýrunum (Andra og Óskari Degi) að taka þá með mér, smá sárbót eftir að ég vann þá í fússball spilinu í gær, hefði sennilega átt að sleppa því að múna á þá eftir að ég tók sigurdansinn en ég bara tapaði mér í sigurvímunni! Það má kannski taka það fram að þeir eru 4 og 6 ára...

Farin að nýta daginn af viti, later...

4 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Mamma mín reyndi alltaf að brjóta saman g-strengina mína.. gafst fljótt uppá að reyna það HAHAHA!!

Nafnlaus sagði...

ekkert drasl hjól treystu mér

Nafnlaus sagði...

Best að kaupa alvöru hjól:)

Nafnlaus sagði...

Hjólið þarf bara að geta rúllað áfram;) ég keypti reyndar notað hjól hér, ýkt ódýrt, en þurfti fljótlega að skipta um keðju og hjól...bæði hjólin! svo kannski kostaði þetta svo eftir allt saman svipað og nýtt og flott hjól... En það er kúl að hjóla, ánægð með þig;)