mánudagur, maí 08, 2006

koma svo...

(tekið af valur.is)

Hjálparbeiðni til ValsmannaFaðir Öllu Gokorian liggur fyrir dauðanum með krabbamein og veikt hjarta og á hann ekki eftir langan tíma á þessu jarðsviði.Þegar þetta varð okkur ljóst í gær var þegar ákveðið að slá saman til að Alla og sonur hennar kæmust til Georgíu til að kveðja gamla manninn, en þau hafa ekki séð hann í 5 ár.

Þetta kostar sitt en með sameiginlegu átaki er þetta hægt, Alla á þetta skilið frá okkur. Leitum við því til allra um hjálp og við vitum að Valsmenn munu láta eitthvað af hendi rakna, öll framlög telja, stór sem smá. Þeir sem vita af eða reka fyrirtæki hafið samband við Evert sími 8990123 því fyrirtæki fá kvittun um styrkt til íþróttamála og er hann frádráttarbær frá skatti. Reikningsnúmerið er: 0322 – 13 - 100114 og kennitalan er 261245-4349
Athugið að það er ekki langur tími til stefnu, og því er best að bíða ekki með framlögin.
Með fyrirfram þökk fyrir stuðninginn, Evert Evertsson

Engin ummæli: