Hey fyndið, einn kúnninn minn sagði við mig í dag að ef ég ætlaði að vera með þessa herþjálfun þá þyrfti ég að hætta að vera svona ljúf! Hehe hún hefur greinilega ekki séð mig þjálfa handbolta! Eða reyndar er ég nú bara æst á leikjum, held ég sé nokkuð róleg á æfingum, en ég tók hana á orðinu og sendi restina af kúnnum dagsins skjálfandi út;oþ Ætla að bæta mig og fara að vera heavy strangur þjálfari! Ekkert dútl hér eftir, verð svona ekta einkaþjálfarabitch! Humm, en ætli ég verði þá ekki sjálf að fara að hætta að borða nammi svo að ég geti sprangað um í magabolum með sixpackinn minn útí loftið, og jafnvel að láta fylla í búbburnar? úff þvílík pressa! Sérstaklega þar sem enginn fagnar meira en ég þegar ég finn brjóstin minnka, finnst miklu þægilegra að vera með lítil brjóst, og fyrir utan það þá láta stór brjóst mann bara líta út fyrir að vera feitari og stór sílíkonbrjóst eru bara kjánaleg (og þá er ég að tala um STÓR, ekki svona sem konur með engin brjóst fá sér, finnst það alveg réttlætanlegt) en já það er allavegna mín skoðun! Allt sem er umfram handfylli er bara að fara til spillis;oþ

Er þetta málið?? Gef mér 6 vikur;oþ
Nóg í bili, da biiiiiiatch is out..!
2 ummæli:
Fylla í búbburnar segirðu??? Neibb, finnst þú pottþétt einsog þú ert :) Og hætta að borða nammi!!! það er nú bara varla hægt, ég er ekki lítið búinn að reyna að hætta fyrir þessa keppni og er að verða geðveikur, ef þú finnur lausn á þessu "vandamáli" okkar let me know! :)
hehe nei, er líka búin að gefast upp á því að reyna að hætta ALVEG í namminu, en frosnu vínberin hafa oftar en ekki bjargað nammigrísnum frá helv... namminu! ;oþ
Skrifa ummæli