Keypti mér geðveikt hjól! Rautt TREK fjallahjól:oD En ég fæ það ekki fyrr en seinnipartinn á morgun:o( Mátaði hjálma, aaargh kartöfluhaus! En ég ÆTLA að fá mér hjálm! Finnst ekkert asnalegt að sjá aðra með þetta og ég verð að slá aðeins af hégómanum, myndi aldrei fyrirgefa mér það ef eitthvað kæmi fyrir og skaðinn yrði jafnvel óbætanlegur! Ég myndi aldrei leyfa litlu gerpunum mínum að hjóla hjálmlausir og því er hálf asnalegt að gera það ekki sjálfur (hehe, skín það í gegn að ég sé að sannfæra sjálfa mig!!) Jæja, hlakka allavegna mjög mikið til að fá hjólið mitt, eins gott að ég noti það eitthvað af viti, fékk það sko ekki gefins! En ég er sannfærð um að það hafi verið money well spent!! ;oþ
Hey já, til hamingju með afmælið elsku Dagný og Drífa, og já Þórdís Brynjólfs á líka afmæli, knús og kossar til ykkar allra;o*
Og til þeirr sem eru að kíkja á æfinga- og matardagbókina mína, takk fyrir að kommenta, það heldur mér við efnið!! Losna þá kannski loksins við þessi síðustu 3-4 kg;o) Vona að þetta gagnist ykkur eitthvað líka...
Farin að þjálfa síðasta kúnnann, later
3 ummæli:
... Og ég er búinn að ná í það :)
Takk þú ert nú alveg hreint yndislegur!! ;o)
Þakka þér, en ég vissi það nú fyrir :)
Skrifa ummæli