Ég er búin að sjá það að ég er umkringd svo yndislegu fólki að ég spyr mig oft hvað í ósköpunum ég hef gert til að eiga þetta skilið! Sigurþór kom með mér í gær að velja hjól og Fannar sótti það fyrir mig í dag, af því að hann var hvort sem er að kíkja á hjól þar rétt hjá! Og það var ekki einu sinni tiltökumál! Takk strákar, þið eruð algjörir gimsteinar;o*
Ég og Fannsi fórum aftur út að hlaupa kl.5:15, ómetanlegt að æfa með fólki sem maður veit að klikkar ekki. Ég hef haft 3 æfingafélaga sem hafa verið solid as a rock! Þó ég hefði beðið þær að mæta kl.3 að nóttu til þá hefði ekki heyrst píp frá þeim! En þessir naglar eru Tinna Mark, Þóra Eggerts og Anna Rut. Þær eru allar í dag með mínum betri vinum, og ég hef mikið spáð í hvort orðtakið "sækjast sér um líkir" eigi ekki bara nokkuð vel við í þessu tilviki! ;oþ
Ég hef ákveðið að taka mér æfingafrí á morgun, er reyndar að vinna 14 tíma með einni pásu þannig að ég eiginlega neyðist til þess, en ég finn að ég þarf smá hvíld, og svo er þrítugsafmæli annað kvöld sem ég ætla að reyna að hafa orku til að fara í.
Er svo að melta það hvort ég eigi að fara á HSÍ hófið á laugardag eða hanga heima að borða pasta með Eysteini á meðan hann hugsar um fótbolta! Og það kemur sennilega ekki á óvart að, félagsskíturinn ég, finnst seinni kosturinn töluvert meira heillandi!
Ætla reyndar að skella mér í smá tvíburapössun á laugardag, svo eilífðarkúnninn geti farið að versla, hlakka geðveikt til, verð ein heima með tvíbbana! Krossa fingur og vona að allt gangi vel, orðið alltof langt síðan ég hitti þá! Fór líka til Kristínar í nudd í dag (þú manst það Kristín að það er bannað eiga barn á næstunni, ekki hægt að vera að missa þig í barneignarleyfi oft á dag!) en eruði að grínast með snúlluna?? 3 mánaða, algjör bolti og ekkert smá sæt!! Kom 3 barna móðirin upp í mér og spurði hvort hún væri ekki langt yfir kúrfunni (ekkert nema eðlilegt að barnlaus manneskja sé með þetta helsta varðandi KÚRFUNA á hreinu!:-/) hehe svo sem ekkert nýtt, ef einhver er að hitta mig í fyrsta skipti og talið berst börnum og barneignum, þá er ekki spurt:"áttu barn?" heldur bara:"hvað átt þú mörg börn?" hehe jájá ég veit það er ekkert nema eðlilegt!! ;oþ
Svo er ég búin að ná að plata Hafrúnu með mér á leik á sunnudag, Grindavík-ÍA, mútaði henni eiginlega! Var að spá í að mála mig bláa og gula í framan, eeeeen ákvað svo að sleppa því, vil ekki að grindjáninn minn afneiti mér eftir fyrsta leik sumars:-/ hehe, var sko ekkert að spá í því í alvörunni! Ætla líka að bjóða litlu grindjánunum mínum með, eða jafnvel litla gerpinu ef hann er þá búinn að fyrigefa hurðarHÚNINUM PáskaDAGS uppnefnið! hehe já húnorinn gengur svo sannarlega í erfðir!! ;oþ
vó langt blogg, later...
3 ummæli:
Eins og þú sagðir sjálf Bjarney mín.. Sækjast sér um líkir.. Þar hefurðu ástæðuna fyrir öllu yndislega fólkinu í kringum þig :) En guð minn góður hvað ég sakna þess að æfa með þér.. Þetta er var sko fullorðins.. Gleymi seint hvatningarorðum á borð við "mamma, mamma" eða öskrum á borð við "upp með þetta auminginn þinn! Amma mín lyftir þessu með annarri!!" ;) Jebb Bjarney, þú ert algjör gullmoli og um leið og ég hætti í boltanum þá sæki ég um að fá að vera æfingafélaginn þinn aftur :)
Btw. Þú hefðir ekki þurft að múta mér til að koma með þér leik. Ég skal koma með þér hvenær sem er (þ.e.a.s. ef ég er ekki á æfingu eða að keppa sjálf :/)
Þú færð æviráðningu sem æfingapartner;o)
Þakka hlý orð, og þú ert velkomin með á leik anytime! ;oD Og svo ætla ég líka að fara að drullast til að kíkja á leik með þér, alveg kominn tími á það!!
Ain't no thing like a chicken wing on a string from Burger king!
Ég mæli samt með gulri/blárri málningu bara svona til að sjá hvort húmorinn sé ekki í lagi hjá honum :)
Skrifa ummæli