mánudagur, maí 29, 2006

Ég veit ekki hvort það hafi eitthvað með hækkandi aldur að gera en ég er varla með taugar fyrir þennan helv... fótbolta!! Úff Grindavík var 1-0 yfir, svo fengu Breiðabliksmenn 2 vítaspyrnur útaf hendi og skoruðu úr báðum, sökkaði feitt sko! Ég var þessi bjartsýna týpa og minnti fólk í næstu sætum á það að ÍA hefði nú líka komist 2-1 yfir og þetta væri sko ekki búið! Eins og kom á daginn, Grindavík náði að setja 2 undir lokin og vinna 3-2! Vá hvað það var sweeeeeet:oD Og taugarnar náðu að róa sig aðeins...

Fyndin helgi að baki, fór á leikritið "Fullkomið brúðkaup" á föstudag, og svo fór ég eiginlega bara í fullkomið brúðkaup á laugardag! Eva ekkert smá sæt í geðveikum kjól og allt varðandi veisluna var ótrúlega vel heppnað. Veit samt ekki hvort ég muni einhvern tímann meika að gifta mig, finnst tilhugsunin um að láta alla í kirkjunni horfa á mig frekar óþægileg! Förðunin færi allavegna til spillis þar sem ég myndi roðna út fyrir hana:-/ jæja, aldrei að segja aldrei;o)

Tók svo skvass við önnu pönnu á sunnudag, sem þýðir 3x skvass á 3 dögum, 1 tap og 2 sigrar, en reyndar eru einhverjir úrslitaleikir eftir;oþ og enn og aftur er kellan soldið stíf eftir ansi góða æfingatörn, held að þar komum við enn og aftur að þessu með hækkandi aldurinn!! Byrja í sjúkraþjálfun í næstu viku hjá manni sem mér finnst sko geðveikt klár! Vona að hann geti hjálpað mér, verður líka fínt að fara til hans á milli Hvannadalshnjúks ævintýrisins og Fimmvörðuhálsargönguna, sem er búið að staðfesta og borga þannig að nú ert no turning back! ;oD Og vonandi hjálpar hann mér líka að gera eitt annað sem ég uppljóstra kannski seinna en er ennþá bara að gerjast í hausnum á mér;oþ

Ég kíkti uppí Zo On í dag til að dressa mig upp fyrir göngurnar, fékk mér slatta og ætlaði svo að greiða mismuninn, já nei þá tilkynnti hann mér það að næsta myndataka myndi bara dekka þetta. Hehe sem sagt búið að ákveða að það verði næsta myndataka hjá mér! Oh well, ekki slæmt að geta nýtt sér það fyrst maður er byrjaður í þessu útivistarstússi:oD

Nenniggi meir, later...

Engin ummæli: