fimmtudagur, maí 04, 2006

örblogg

Þetta verður örblogg þar sem ég er þreytt og ætla á æf kl.6 þar sem ég þarf ekki að mæta í vinnuna fyrr en kl.8:oD

Hey vó, ég var sofnuð fyrir kl.21 í gærkvöldi, var algjörlega búin á því! En vaknaði svo vel fersk í morgun og æfði nánast samfleytt í 4 klukkutíma! Fór í spinning kl.6:30, teygði vel á eftir, tók mér svo hálftíma pásu og borðaði vel (2 kolvetnarík próteinbör og burner) lyfti svo axlir og tricep með crazy partner kl.8 og svo smá skvass með honum, og svo kom Svebbinn minn og við spiluðum í tæpann klukkutíma og það var rosa gaman og ótrúlega spennandi! En hann vann 4-2:o( Fóru samt flestar loturnar 9-7 eða e-ð, voru hörkuleikir sko.

Ég fékk staðfestingu á því að skvassspaðinn minn er lélegur! Er búin að vera að reyna að halda því fram, og svo fékk Elmar hann lánaðann og sagði að hann væri ömurlegur! Sem sökkar því ég keypti hann á 12 þúsund (og samt á afslætti!) en ég spila mikið verr með honum, og það er ekki e-ð svona "árinni kennir illur ræðari"-thing, það munar í alvörunni helling! En svebbi er svo sætur við mig að hann leyfði mér að spila með sinn og hann var með minn (hann hélt líka með mér sko, mjög eðlilegt að halda með andstæðingnum! hehe) En ég ætla að kaupa mér nýjann spaða á morgun..!

Og svo ætla ég líka að fara á morgun eða hinn að kaupa mér hjól:oD Ætla svo í hjólatúr með Þóru minni á laugardag, það verður sniiiilld!

Humm, hef ekkert meira að segja, nema bara til hamingju Valsstelpur, þið eruð LANGBESTAR! Þó að þær hefðu lent 7 mörkum undir þá hafði ég samt einhvern veginn engar áhyggjur, eru í mikið betra formi og með meir breidd, gerðu sér þetta samt óþarflega erfitt fyrir! En líka ekki grínið að reyna að koma boltanum framhjá markmanni sem slagar í hátt á þriðja metra! En Begga er samt miklu betri sko! ;oþ En þær áttu þetta svo sannarlega skilið, hafið vaxið gríðarlega í vetur og sýnt langmesta stöðugleikann, ergo = eru einfaldlega með besta liðið! VIVA VALUR ;o)

Farin að lúlla...

Engin ummæli: